Breyttur tími

Á morgun, 20. febrúar er hóptími, en við ætlum að hittast klukkan 11:00. Þá eru allir komnir á ról og búnir í fjósinu. Stefnum að þessum tíma framvegis, ef enginn mótmælir. Næsti hóptími verður svo eftir viku, 27. febrúar, kl. 11:00. Sjáumst hress.

Hóptímar

Nú eru allt komið í fullan gang eftir jólafríið, og mál að skipuleggja hóptíma. Nú fer ég stundum á Suzuki námskeið um helgar, og þá verðum við að hagræða hóptímum eftir því sem hentar. Hóptímar í Janúar verða sem hér segir:

16. janúar kl. 10:00

30. janúar kl. 10:00

 


Síðasta kennsluvika fyrir jól

Tónleikarnir heppnuðust vel síðast liðinn laugardag. Við þökkum Ingu Ástu og Pétri kærlega fyrir afnot af Selinu á Stokkalæk og fína flyglinum. Vonandi fáum við einhverjar myndir til að setja inn hérna - ég gleymdi nefnilega að ráða ljósmyndara. Það er of mikið að hugsa um. Á morgun ætla nokkrir fiðluleikarar að spila í Eldstónni og síðan verður lokaður músíkfundur eldri nemenda á laugardaginn. Næstkomandi mánudag 21. desember kl. 14:00 ætlum við að heimsækja fólkið á Kirkjuhvoli og spila jólalögin, en að því loknu verður jólafrí.


Músíkfundur í Selinu á Stokkalæk

Á morgun, laugardaginn 12. desember, klukkan 11:00 ætlum við að hittast í Selinu á Stokkalæk og spila það sem við höfum verið að æfa undanfarnar vikur, jólalög með meiru. Allir vinir, ættingjar og velunnarar eru velkomnir að koma og hlusta.

Fyrsti hóptími

Fyrsti hóptími vetrarins verður laugardaginn 3. október kl. 10:00. Allir yngri en 15 ára eiga að mæta, bæði fiðluleikarar og píanóleikarar, og skulu reyna að hafa a.m.k. eitt foreldri með sér. Brauð verður bakað að venju, og foreldrar mega hafa með sér álegg eða ávexti. Góður undirbúningur fyrir Kjötsúphátíðina síðar um daginn. Sjáumst hress!

Píanóstilling

Stefán Birkisson píanóstillari kemur í héraðið miðvikudaginn 30. september n.k. Vinsamlegast látið mig vita ef þið viljið láta stilla hljóðfærið ykkar þann dag!

Kennsla hefst aftur

Það lítur ekki út fyrir að þetta dásamlega sumar ætli að taka enda, en nú styttist samt sem áður í að alvara lífsins taki við. Ég mun á næstu dögum hafa samband við þá sem voru búnir að sækja um nám fyrir næsta vetur, og þeir sem enn eru að hugsa sig um ættu að drífa í að hafa samband við mig. Ég mun halda uppteknum hætti og kenna á píanó og fiðlu, og einnig á hljómborð, þeim sem það vilja. Ég tek píanónemendur frá 5 ára aldri og fiðlunemendur frá 3ja ára. Kennsla getur hafist í næstu viku, eða eftir samkomulagi.

Bestu kveðjur!


Vortónleikar

yngri nemenda minna voru haldnir í Sögusetrinu í gær og tókust þeir með ágætum. Allir spiluðu vel og hóflega margir komu að hlusta. Ég get ekki annað en verið ánægð með árangurinn eftir þennan vetur. Frábærir nemendur og áhugasamir foreldrar. Nú sér maður hvað þátttaka foreldra skiptir miklu máli. Einn fulltrúi eldri deildarinnar kom líka fram, og Balázs og Kitty voru svo elskuleg að leika eitt lag að lokum, til að sýna hvernig fagmenn bera sig að. Við þökkum þeim fyrir. Sellóleikarinn Brian fær líka bestu þakkir fyrir hjálpina, bæði fyrir undirleik í hóptímum og meðleik á tónleikunum. Kvartett var stofnaður í tilefni dagsins, eins og hér sést:

2009   tonleikar 23. mai 060

 

 

Kvartett dagsins:

Magdalena, Brian, Guðrún og Lilja Ósk.

 

 

Fleiri myndir frá tónleikunum eru í albúmi.

Við þökkum kærlega fyrir lánið á Sögusetrinu. Ekki amalegt að spila umkringd flottu myndunum hennar Þórhildar Jónsdóttur. Ég hvet alla sveitunga til að skoða þær.

Ég kenni í eina viku í viðbót, en síðan hefst sumarfrí. Nemendur eru minntir á að skila umsóknum fyrir næsta vetur og nýir nemendur eru einnig boðnir velkomnir.

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn!

 


Tökum frá

laugardaginn 23. maí. Þá hittumst við öll  í Sögusetrinu og spilum fyrir vini og vandamenn - væntalega fyrir hádegi. Eldri nemendur - sem ekki þora að spila fyrir fólk - hittast í Langagerði 3. maí - við segjum ekki klukkan hvað, því þar verður aðgangur algerlega bannaður - nema fyrir fáeina útvalda!

Hóptími aftur í dag

Ég er mjög montin af nemendum mínum í yngri deildinni sem spiluðu fyrir hvert annað í dag. Nú fer öllum mikið fram, allir fiðluleikarar halda vel á hljóðfærinu sínu og spila með puttum (þær eru sumsé allar byrjaðar að nota vinstri hönd). Píanóleikarar æfa allir af kappi - og sumir lesa líka nótur.  Einn pabbinn tók myndir og ég vonast til að við fáum að sjá þær hér - eða á Fésbók - nú er hún svo mikið í tísku.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tónablogg

Höfundur

Guðrún Markúsdóttir
Guðrún Markúsdóttir
Guðrún Markúsdóttir er sjálfstætt starfandi tónlistarkennari í Rangárþingi eystra. Netfang er goodster@hive.is og sími 865 0311

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2009   tonleikar 23. mai 082
  • 2009   tonleikar 23. mai 081
  • 2009   tonleikar 23. mai 060
  • 2009   tonleikar 23. mai 053
  • 2009   tonleikar 23. mai 045

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 462

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband